Deplar sem sjást á kortinu núna
Lengi lifi Reykjadalur
18. ágúst kl. 15:25
GPS hnit 64,13688 / -21,88694

Þessi Depill uppfærist sjálfkrafa þegar hjólastóllinn er á ferðinni!Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur staðið til að bjóða ekki upp á vetrardvalir í Reykjadal þennan veturinn sökum fjárskorts. Þetta er skiljanlega mikill missir fyrir þau börn sem til þessa hafa notið dvalanna og fjölskyldur þeirra. Starfsmenn Reykjadals hafa því ákveðið að leggja sitt af mörkum og safna áheitum.
Þann 17. ágúst munu starfsmenn ganga með sitjandi farþega í hjólastól frá Laugalandi í Holtum, sem eru einnig sumarbúðir á vegum SLF, til Reykjadals og þaðan að húsakynnum Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut 13. Vegalengdin er ca 130 km.
Söfnunarsímanúmer fyrir Reykjadal sem símafyrirtækin hafa verið svo vinsamlega að útvega okkur eru eftirfarandi:
904-1010 fyrir 1000 krónur
904-1030 fyrir 3000 krónur
904-1050 fyrir 5000 krónur
Einnig er hægt að leggja inn frjáls framlög á reikning
0549-26-10 kt.
630269-0249.
Hægt er að fylgjast með söfnuninni á Facebook:
Lengi lifi Reykjadalur